Myndband

Í þynnkunni í gær var ég kanna króka og kima andlitsbókarinnar. Komst að því að það er lítið mál að hlaða inn myndböndum þangað. Ákvað þá að skella inn þessari snilld til að prófa. Ég var satt best að segja búin að gleyma því hvað þetta er fyndið. Ég var ekki úti á horfa á þegar þetta átti sér stað ég skammaðist mín svo mikið. Heyrði lætin alveg inn og var mjög vel meðvituð um það þegar löggan kom á svæðið.

Þetta er sem sagt óborganlegt myndband af kolólöglegu flugeldatertunni sem þeir feðgar pabbi og Pétur keyptu sér fyrir nokkrum árum. Það var svo vont veður bæði um áramótin og á þrettándanum að þeir gátu ekki skotið henni upp þá. Þeir ákváðu svo eitt þriðjudagskvöldið í lok janúar klukkan hálf ellefu að rogast með hana út á götu í hverfinu okkar og kveikja í. Tertan var svo stór að þeir komust ekki mikið lengra með hana og hún passaði ekki í neinn bíl í fjölskyldunni. Þeir urðu mjög hissa þegar þeir komust að því hvað hún var ýkt og mjög kátir með sig - þangað til það varð allt vitlaust og fólk kom hlaupandi alveg brjálað og svo löggan ofan í allt.

Flugeldaáhuginn hjá þeim minnkaði aðeins eftir þetta atvik. Allavega hjá pabba, þar sem hann tók það á sig að svara til saka í héraðsdómi fyrir málið. Þurftu að greiða sekt. Ekkert voðalega háa þó....

Fyrir þá sem ekki eru skráðir á andlitsbókina þá skellti ég í fyrsta skipti inn myndbandi hér. Má sjá hér til vinstri. Njótið vel....

Er í rauðum bol


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Er þetta myndband bara fyrir þá sem hafa aðgang að andlitsbókinni?

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 1.9.2008 kl. 18:01

2 Smámynd: Þoka

Já því miður er það þannig í bili. Opnaði það fyrir alla þar, en það virðist samt vera að fólk þurfi að vera skráður þar inn. Ætla að athuga með að setja þetta hingað inn líka fyrir þá sem eru ekki með facebook. Mæli reyndar með því Elma að þú fáir þér facebook. Mjög hrifin af því.

Þoka, 1.9.2008 kl. 18:19

3 identicon

Það endar sjálfsagt með því að ég geri það.

Hulda Elma Guðmundsdóttir 1.9.2008 kl. 22:04

4 Smámynd: Úrsúla Manda

Jesús minn  Þetta er engin SMÁ bomba. Takk fyrir að setja þetta hérna inn, ég er ekki með facebookið og kann ekkert á það. Verð örugglega með þeim síðustu til að fá mér svoleiðis, veit eiginlega ekkert út á hvað þetta gengur.

Ég klukkaði þig góða mín! Þú sleppur ekkert sko 

Úrsúla Manda , 1.9.2008 kl. 23:13

5 identicon

BOBA ÉG SEGI ÞAÐ SATT OG SKIRFAÐ ómæ gad hvað ég hló þekki nú allveg taktana í bekkjabróðir mínum í restina HA ÉG????? 

Bið að heilsa öllum

Sigga Magga sem þarf liggur við að skipta um buxur

Sigga Magga 3.9.2008 kl. 19:17

6 identicon

Djofulli vildi eg hafa sed thetta "live" en er samt fegin ad vera ekki nagranni ykkar!

Anna Heida 3.9.2008 kl. 19:17

7 Smámynd: Þoka

Já ég sé nú aðeins eftir því að hafa ekki farið út og horft þegar ég sé þetta video. Þetta var ýkt. Glumdi þarna um alla Reykjavík hreinlega.

Þoka, 4.9.2008 kl. 11:45

8 identicon

Djöfull er þetta fyndin saga - að búast við einhverri smáköku og fá svo bara keppnis tertu ... á þriðjudagskvöldi í lok janúar ha ha ha  - hefðu kannski getað stofnað sértrúarsöfnuð á staðnum og afsakað sig með því.

Dagga 11.9.2008 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband