Þriðjudagur, 19. ágúst 2008
Beisli
Hvað varð um notkun beisla á smákrakka ? Hvenær nákvæmlega hvarf það fyrirbæri af sjónarsviðinu og af hverju ?
Ég fór um síðustu helgi í gönguferð niður í fjöru með smákrakka. Dúu Kristínu (sem er nýorðin vinkona mín eftir þessa fjöruferð) eins og hálfs árs. Fjaran sem við fórum í er í Vík í Mýrdal. Ekki nein sakleysisleg sólarströnd heldur brjálað brim og djúpur sjór sem sogað hefur slatta af fólki burt. Dúa var að kasta steinum í sjóinn og ég hélt í aðra höndina á henni. Hafði að sjálfsögðu allan varan á mér. Hún er lítil greyið og gat ekkert beygt sig almennilega niður til að sækja meira grjót nema ég beygði mig líka. Hún gat ekki haft grjót í báðum höndunum því hún neyddist til að leiða mig. Hana langaði til að geta notað báðar hendurnar og þá varð mér hugsað til beislisins. Ef það væri ennþá í notkun, þá hefði ég verið með hana í því - haft frekar langt í ólinni og setið á grjóti í fjörunni og leyft henni að henda grjóti alveg eins og hún vildi.
Við systkinin vorum oft með svona beisli - sérstaklega þó bræðurnir auðvita. Það þótti fullkomlega eðlilegt á þeim tíma. Kom í veg fyrir að maður gæti hlaupið eitthvað út í buskann og orðið sér að voða. Reyndar minnir mig að það hafi nú ekkert verið neitt svo voðalega löng ól á þessu fyrirbæri.
Flokkast þetta nú til dags undir ofbeldi á börnum eða þótti þetta ekki lengur hentugt ?
Er í svörtum bol



manda
sakesensei
dianadv
saxi
geirg
gummigisla
helgist
krummi80
heg
thelmaasdisar
torabeta
Athugasemdir
Þetta er nú alveg til og hægt að kaupa þetta, en því miður að Þá sér maður þetta ekki oft notað. Því eins og þú segir að þá er þetta bara stundum nauðsynlegt. Mamma var einmitt að rifja það upp um daginn að Jón bróðir og Hjörtur Villa hefðu verið bara bundnir við snúrurnar úti í garði og þær hefðu skroppið út annað slægið til að losa þá í sundur he he. þetta væri sko einmitt vera gert í dag eða þannig!
kveðja Þóra.
er líka í svörtum bol
Þóra Elísabet Valgeirsdóttir, 19.8.2008 kl. 22:35
Ég er í brúnum bol, en er að hugsa um að fara úr honum því mér er ansi heitt
GB 20.8.2008 kl. 11:02
Það eru sko alveg til beisli ennþá. Ég keypti eitt stykki og set stundum stelpurassgatið mitt í það - sérstaklega þegar við erum einhversstaðar nálægt tjörninni og hún fer að gera sig líklega til að hoppa útí. Annars finnst henni mjög leiðinlegt að vera heft af því og því reynum við að nota það sem sjaldnast.
Dagga 20.8.2008 kl. 20:02
Við eigum svona beisli, notum það reyndar ekki mikið en það hefur þó verið notað einmitt í svona aðstæðum eins og þú varst í.
Stella Rán, 20.8.2008 kl. 22:42
Er í svörtum bol núna
GB 21.8.2008 kl. 15:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.