Breytingar

Sigrún er búin að skipta um vinnu. Hún er farin að vinna á Mojo/Monroe. Það er stofa alveg niðrí bæ. Hentar henni ljómandi vel og núna getur hún alltaf skotist í hádeginu og keypt sér einn og einn pels ef hana langar.

Ég er mjög glöð fyrir hennar hönd. Hef oft undrast það hvernig það er hægt að vinna í Kringlunni og sjá aldrei hvernig veður er úti og fá aldrei ferskt loft með því að opna glugga. Á eftir að kíkja til hennar á nýju stofuna og taka út aðstæður - hvernig kaffið smakkast og hvort það sé til hármótunarefni þar sem höfðar til mín. Ég er mjög undarleg þegar kemur að slíkum efnum.

Annars missti ég af fermingarbarnamótinu hjá árganginum mínum vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Helgin hjá mér fór sem sagt í það að öfunda þau sem voru þar að skemmta sér og vorkenna sjálfri mér gríðarlega. Ég jafna mig fljótlega og mér fannst mjög gaman að heyra sögurnar frá Birnu þegar hún skilaði sér aftur í bæinn. Heppnaðist víst framúrskarandi vel. Það er hægt að byrja að láta sig hlakka til eftir 10 ár...

Stefnt er á stelpukvöld á sunnudaginn. Sex and the city er komin í bíó og ætlum við vinkonurnar að hittast og borða saman og storma svo í bíó. Hlakka mjög til. Vildi bara óska þess að GB væri á landinu til að njóta þess með okkur.

Er í svörtum bol


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jájá..............skipti um vinnu og ég að frétta þáðí gær!!! Manni er aldrig sagt neitt,alltaf síðastur í familíunni til þess að frétta eitthvað.........

Hertoginn á Bjarti NK 6.6.2008 kl. 18:09

2 identicon

Jæja, þá fer maður að gera sér ferð niður í miðbæ til að fá aðalkelluna til að klippa sig. Ég myndi elta hana alla leið til mmmmm ok kannski ekki alveg Nesk en ef hún skyldi af ehverjum ástæðum flytja jafnvel til Þorlákshafnar þá myndi ég alveg elta hana, hún þekkir hárið mitt svo vel og því líður svo vel hjá henni :o)

Sandra Birgis 9.6.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband