Gleðileg jól

Kæru lesendur. Þessir örfáu sem eftir eru sökum ótrúlegrar bloggleti undanfarið ár ;)

Óska ykkur öllum gleðilegra jóla.

Ég ætla að hafa það ofurgott og reyna að gera sem minnst.

Er í svörtum bol... í vinnunni ennþá ..


Óvenjulegur matur

Það var verið að elda skordýr í fréttunum áðan. Einhver Japani að elda ýmiskonar pöddur. Horfði á þetta og undraðist hvernig hægt væri að stinga þessu upp í sig án þess að æla. Ég minnist þess ekki að hafa smakkað pöddur. Gæti jú eitt og eitt kvikindi óvart hafa skotist upp í mann í gegnum tíðina en ég hef aldrei meðvitað borðað pöddur. Kannski er þetta eitthvað gríðarlega gott sem ég hef farið á mis við í mörg mörg ár... hver veit. Klárlega eitthvað sem ég þarf að skoða. Hugsa að þetta sé allt spurning um hugarfar.

Velti því fyrir mér í kjölfarið á þessari frétt hvað ég hef látið ofan í mig sem gæti talist sérkennilegt fyrir íslending. Smelli því hérna inn....

Kengúra - strútur - æðakolla - svanur - lynghæna - kornhæna - froskalappir - lóa - spói - stokkönd - dádýr - elgur - kanína - ostrur - styrjuhrogn (beluga styrjan sem er í útrýmingarhættu í dag) - dúfa - kolkrabbi - sverðfiskur og vartari.

Man ekki eftir meiru í augnablikinu. Sumt af þessu þykir mér ekkert óvenjulegt en hef orðið vör við að sumu fólki þykir það. Ég er pottþétt að gleyma einhverju samt.

Keypti hýasintur í dag. Þrjár hvítar sem ég setti í svartan pott. Keypti líka thuju til að setja í vasa. Nauðsynlegt að hafa smá grenilykt þar sem ég tók þá ákvörðun að hafa ekki jólatré. Annað jólaskraut er ekki í þessu húsi. Er eitthvað svo hóruhúsaleg jólaserían sem ég á að ég ákvað að henda henni.

Er í dökkblárri flíspeysu merktri EJS


Tyrkland

Kom heim frá Tyrklandi fyrir nokkrum dögum. Tja var þar í eina níu daga í lok október. Golfferð með Pétri bróður. Ég var ekki að spila golf. Fór ekki í golfskólann.

Ferðin var algjör snilld. Afslöppun dauðans. Týpískt sólarlandafrí nema ég var á fimm stjörnu hóteli og ýmis konar lúxus á ferðinni sem ég hef ekki áður séð eða upplifað.

Borðaði einn daginn ásamt Pétri og fleirum í klúbbhúsinu við einn af þremur golfvöllunum sem voru í boði. Þar var flækingsköttur á kreiki. Mjög mjór og ræfilslegur að sníkja mat. Þegar hann kom var ég búin með allt kjötið mitt og Pétur líka. Eina sem var eftir voru nokkrar franskar kartöflur. Ég prófaði að gefa honum eina. Viti menn... hann át hana með bestu lyst. Gaf honum allar og hann gúffaði þeim í sig alsæll.

Daginn eftir þegar Pétur var að borða hádegismatinn sinn á sama stað, mætti hann aftur. Pétur var nýbúinn að borða og átti ekkert til að gefa honum. Það var snakkpoki á borðinu hinsvegar. Doritos flögur. Pétur ræddi málin aðeins við sessunaut sinn og þeir voru að spá í hvort kötturinn borðaði flögur. Ákveðið var að prófa að gefa honum eina. Hann át allan pokann og var ekki lengi að því.

Hvað ætli ég þyrfti að svelta Lúsina lengi til að hún færi að borða franskar kartöflur og doritos snakk  - það þætti mér forvitnilegt að vita. Án þess að ég ætli nú að fara að gera einhverjar tilraunir með það mál.

Nóvember kaktusinn minn hvíti er farinn að blómstra mér til mikillar gleði.

Er í svartri peysu. Peysu takið eftir... mér er kalt.


Klukk klukk

Úrsúla og Þóra Elísabet klukkuðu mig. Mér finnst það skemmtilegt. Mjög hrifin af svona leikjum. Snúnar spurningar þó - þurfti að hugsa aðeins þegar kom að nokkrum atriðum. Hér kemur þetta:

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

- Fiskvinnsla hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað

- Blómabúðin Laufskálinn í Neskaupstað

- Þjónn/bakari á Pizza 67 í Neskaupstað og í Reykjavík

- Símavörður hjá EJS í Reykjavík

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

- Adamsborg í Neskaupstað

- Miðtún (sprúttstaðir) í Reykjavík

- Engihlíð í Reykjavík

- Langholtsvegur í Reykjavík

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:

- Bitter Moon

- The Shawshank Redemption

- Treesome

- Goodfellas , reyndar flest allar mafíumyndir ef út í það er farið

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

- Bráðavaktin

- Gossip Girl

- Gray's Anatomy

- Dr House

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

- Benidorm - Benidorm - Benidorm - Benidorm - ójá ég hef oft farið til Benidorm til hans GB míns...

- Krít

- Búlgaría

- Frakkland

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

- Facebook

- MBL

- Vísir

- Vísindavefurinn

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

- Villibráð

- Lambakjöt

- Fisk

- Vitaborgarar

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

- Á hverfanda hveli

- Ilmurinn

- Ævisaga Keith Richards

- Eymd

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

- Ásgeir Ásgeirsson hrekkjusvín

- Gummi Gísla

- Steinunn Þóra

- Róbert Orri

- Síðast en ekki síst Kristínu Bergmann stórvinkonu mína

Þar hafið þið það.....

Er í svörtum bol


Myndband

Í þynnkunni í gær var ég kanna króka og kima andlitsbókarinnar. Komst að því að það er lítið mál að hlaða inn myndböndum þangað. Ákvað þá að skella inn þessari snilld til að prófa. Ég var satt best að segja búin að gleyma því hvað þetta er fyndið. Ég var ekki úti á horfa á þegar þetta átti sér stað ég skammaðist mín svo mikið. Heyrði lætin alveg inn og var mjög vel meðvituð um það þegar löggan kom á svæðið.

Þetta er sem sagt óborganlegt myndband af kolólöglegu flugeldatertunni sem þeir feðgar pabbi og Pétur keyptu sér fyrir nokkrum árum. Það var svo vont veður bæði um áramótin og á þrettándanum að þeir gátu ekki skotið henni upp þá. Þeir ákváðu svo eitt þriðjudagskvöldið í lok janúar klukkan hálf ellefu að rogast með hana út á götu í hverfinu okkar og kveikja í. Tertan var svo stór að þeir komust ekki mikið lengra með hana og hún passaði ekki í neinn bíl í fjölskyldunni. Þeir urðu mjög hissa þegar þeir komust að því hvað hún var ýkt og mjög kátir með sig - þangað til það varð allt vitlaust og fólk kom hlaupandi alveg brjálað og svo löggan ofan í allt.

Flugeldaáhuginn hjá þeim minnkaði aðeins eftir þetta atvik. Allavega hjá pabba, þar sem hann tók það á sig að svara til saka í héraðsdómi fyrir málið. Þurftu að greiða sekt. Ekkert voðalega háa þó....

Fyrir þá sem ekki eru skráðir á andlitsbókina þá skellti ég í fyrsta skipti inn myndbandi hér. Má sjá hér til vinstri. Njótið vel....

Er í rauðum bol


Pirr pirr

Djöfull er ég orðin þreytt á símtölum frá DV. Ég er áskrifandi af blaðinu og er búin að vera það lengi. Nú er svo komið að mig langar mest til að segja upp áskriftinni. Tvisvar sinnum núna á nokkrum vikum er búið að hringja í mig frá útgáfufélagi DV. Einhver manneskja sem býður mér með ofsalega glaðlegri (eins og hún sé að gera mér einhvern rosagreiða róm) röddu fría áskrift af DV í þrjá mánuði og svo næstu tvo á hálfvirði !

Stúlkunni sem hringdi fyrst, leyfði ég að mala og mala og endaði svo á því að segja við hana að ég væri áskrifandi af DV og væri búin að vera það lengi. Þá varð hún mjög furðuleg og kom með spes tillögur um að ég ætti að hætta áskriftinni og fá þetta tilboð hjá þeim og gerast svo aftur áskrifandi að þeim tíma liðnum. Það fannst mér vægast sagt heimskulegt og óþarfa vesen fyrir mig, þannig að ég spurði bara hvort hún gæti ekki einfaldað þetta og sleppt því að taka áskriftina út af kortinu mínu í þennan tíma. Hummmmmm kom þá bara - jú hún ætlaði að athuga þetta. Eina sem gerðist var að blaðið mitt fór að berast á vitlaust heimilisfang. Sýndi gríðarlega stillingu og hringdi og benti þeim kurteisislega á að blaðið væri hætt að berast mér. Því var kippt í liðinn samstundis.

Í síðustu viku var ég stödd ásamt Sigrúnu í ísbúð á Grensásveginum (útibúi frá ísbúðinni á Hagamel) og við sátum og vorum að borða ís þegar síminn hringdi. Strákur í símanum sem kynnti sig og sagðist vera frá útgáfufélagi DV og nú hefði ég sko dottið í lukkupottinn. Romsaði svo út úr sér rosaglaður sömu ræðunni og stúlkan hafði gert fyrr. Ég sprakk og spurði hvað væri eiginlega að þessu liði sem hann væri að vinna fyrir. Ég væri farin að halda að það væri bara meira en lítið að þeim. Las honum svo pistilinn frekar grimmum rómi. Benti  honum á það að svona símtöl til áskrifenda væru alls ekki að gera sig. Ég væri að borga fyrir blaðið í hverjum mánuði og gerði það samviskusamlega. Aldrei man ég til þess að hafa fengið einhvern mánuð frían allan þennan tíma. Hann varð frekar miður sín og ég bað hann bara að skila þessu til sinna yfirmanna - hann væri bara að vinna vinnuna sína greyið.

Fer ótrúlega í taugarnar á mér allt svona. Sama sagan með bankann minn (sparisjóður Norðfjarðar) og aðra banka. Maður er búinn að vera í viðskiptum í sama bankanum í mörg mörg ár. Litið á það sem fullkomlega sjálfsagðan hlut af þeirra hálfu. Nýir viðskiptavinir fá hinsvegar allskonar tilboð og flott kjör. Það er kannski bara spurning um að gerast svona bankamella og skipta um banka á ársfresti og fá allt sem er í boði.

Er í hvítum bol. Ef ég væri ekki í honum heldur svörtum, þá væri ég líka búin að setja upp hornin og halann er svo ofurpirruð....


Vísindavefurinn

Ég elska vísindavefinn og hef sent margar spurningar þangað inn. Allar mjög gáfulegar auðvita. Mér var hinsvegar bent á þessa spurningu áðan. Aðra eins snilld hef ég ekki séð í langan tíma. GB benti mér á hana og var alveg handviss um að ég hefði sent hana inn. Það gerði ég reyndar ekki - en vildi alveg að ég hefði gert það. Lesið endilega svarið líka.

Er í svörtum bol


Beisli

Hvað varð um notkun beisla á smákrakka ? Hvenær nákvæmlega hvarf það fyrirbæri af sjónarsviðinu og af hverju ?

Ég fór um síðustu helgi í gönguferð niður í fjöru með smákrakka. Dúu Kristínu (sem er nýorðin vinkona mín eftir þessa fjöruferð) eins og hálfs árs. Fjaran sem við fórum í er í Vík í Mýrdal. Ekki nein sakleysisleg sólarströnd heldur brjálað brim og djúpur sjór sem sogað hefur slatta af fólki burt. Dúa var að kasta steinum í sjóinn og ég hélt í aðra höndina á henni. Hafði að sjálfsögðu allan varan á mér. Hún er lítil greyið og gat ekkert beygt sig almennilega niður til að sækja meira grjót nema ég beygði mig líka. Hún gat ekki haft grjót í báðum höndunum því hún neyddist til að leiða mig. Hana langaði til að geta notað báðar hendurnar og þá varð mér hugsað til beislisins. Ef það væri ennþá í notkun, þá hefði ég verið með hana í því - haft frekar langt í ólinni og setið á grjóti í fjörunni og leyft henni að henda grjóti alveg eins og hún vildi.

Við systkinin vorum oft með svona beisli - sérstaklega þó bræðurnir auðvita. Það þótti fullkomlega eðlilegt á þeim tíma. Kom í veg fyrir að maður gæti hlaupið eitthvað út í buskann og orðið sér að voða. Reyndar minnir mig að það hafi nú ekkert verið neitt svo voðalega löng ól á þessu fyrirbæri.

Flokkast þetta nú til dags undir ofbeldi á börnum eða þótti þetta ekki lengur hentugt ?

Er í svörtum bol


Sængur

Sæng og sæng er ekki það sama. Það verður að vera alveg á hreinu og þetta hélt ég að allir vissu. Ég á mjög fína svanadúnsæng úr versluninni Dún og Fiður á laugaveginum sem ég fékk í þrítugsafmælisgjöf á sínum tíma. Málið er bara að það er ekki æðadúnsæng. Ég hef haft áhuga á æðadúnsængum frá því ég veit ekki hvenær. Það er einfaldlega það flottasta sem hægt er að fá. Strákur sem ég var einu sinni mikið með í gamla daga átti tvær æðadúnsængur. Aðra þeirra notaði hann sem sjósæng ! Það leið næstum því yfir mig þegar hann sagði mér það á sínum tíma. Hann hafði greinilega enga hugmynd um að sæng er ekki það sama og sæng - eða var bara alveg sama. Að vísu bjuggu amma hans og afi á jörð þar sem dúntekjuhlunnindi fylgdu með. Gæti verið það. Ég þarf ekki að taka það fram að ég öfundaði hann mikið.

Ég komst að því á ferð minni um Flatey um daginn með Draupni að ég get keypt æðadúnsæng af bóndahjónunum sem við gistum hjá á kr 120 þús. Ef ég fer hinsvegar í Dún og Fiður, þá kostar hún vel yfir kr 200 þús. Alveg sama á hvorum staðnum sem ég kaupi - þá verður sængin alltaf dýrari en ferðavélin sem mig langar í.

Mjög gaman og athyglisvert að sjá allar athugasemdirnar við síðustu færslu. Stelpurnar virðast flestar vera á því að kaupa tölvuna og svo einhverja ódýra sæng ( aldrei og þá meina ég aldrei myndi ég kaupa mér ódýrustu sængina í rúmfatalagernum) eða fá sængina í jólagjöf. Það er ekki í boði. Er löngu búin að finna út þakið á jólagjöfunum og æðadúnsæng er einfaldlega ekki inn í myndinni. Ég er heldur líka ekkert svo sem hlynnt svona dýrum jólagjöfum. Strákarnir eru aftur á móti á því að ég eigi að kaupa sængina. Benda á að ég eigi borðtölvu og hafi ekkert við ferðavél að gera. Búin að tala við nokkra karlkynsvini mína sem hafa ekki komið með athugasemd inn á bloggið og það er það sama. Sængin, ekki spurning. Ég hélt þetta yrði akkúrat öfugt. Strákarnir myndu kaupa tölvuna og stelpurnar sængina. Skynsamlegast er þó tillagan um að geyma peningana og grípa til í kreppunni..... ég kýs að horfa fram hjá þeim tillögum.

Ætla að hugsa þetta aðeins lengur. Það bættist nefnilega eitt við núna um helgina á listann. Myndavél. Ég var stödd í Vík í Mýrdal um helgina og komst að því að myndavélin mín er orðin gömul. Tekur bara alls ekki nógu góðar myndir lengur. Ég er mjög lengi að smella af og myndirnar verða bara ekki nógu skýrar. Ætla að skella þeim inn á facebook á eftir - þannig að þið getið skoðað þar.

Stofnun samtakanna sem Ásgeir nefnir í athugasemdunum er afar áhugaverð. Hvet þá eindregið til að láta vaða. Gæti orðið spennandi vetur framundan.....

Er í svörtum bol


Stór ákvörðun

Eftir langt og gott sumarfrí er ég í smá veseni. Hugsaði með mér í morgun að best væri að tussast til að byrja að blogga aftur og spyrja lesendur - það er að segja ef þeir eru ekki allir búnir að yfirgefa mig.

Hvort á ég að kaupa mér XPS M1330#13 eða XPS M1530#06 ( þetta eru ferðavélar ef einhver er ekki búinn að átta sig á því) eða æðadúnsæng ?

Ég er búin að vera að veltast með þetta í nokkra daga núna. Kostar allt voða svipað og ég bara get ekki ákveðið mig.

Reikna með mjög skemmtilegum umræðum í athugasemdakerfinu - líka frá þessum bældu sem lesa bloggið mitt og þora aldrei að tjá sig neitt.

Er í svörtum bol  ( hehe þessi heimski villupúki þekkir ekki orðið tussast )


Uppfærsla

Þessi bloggsíða hefur hér með verið uppfærð.

Er í svörtum bol....


DVD Spilari

Þar kom að því. Dvd spilarinn minn bræddi endanlega úr sér í gærkvöldi ! Náði með herkjum að horfa á þrjá þætti af Sopranos og svo gafst hann bara upp og neitaði að spila meira. Óttaðist um tíma að það myndi kvikna í honum - hann reyndi svo mikið að koma sér í gang.

Hann var reyndar orðinn frekar gamall greyið. Skítódýr United spilari sem ég keypti í Hagkaup á sínum tíma. Búinn að þjóna tilgangi sínum lengur en von var á.

Keypti nýjan í Elkó áðan. Hann er flottur. Philips. Kr 8990. Hvað ætli hann geri þegar ég set Sopranos í gang á eftir. Spennó.

Lúsina hefur klárlega verið farið að vanta D vítamín eða er það A sem maður fær úr sólinni ? Hann er vanur að sofa allan daginn hérna inni í íbúðinni, en eftir að sólin fór að skína svona og hitastigið hækkaði aðeins liggur hann úti í sólbaði. Furðuleg skepna hann Lúsífer.

Er í svörtum bol


Breytingar

Sigrún er búin að skipta um vinnu. Hún er farin að vinna á Mojo/Monroe. Það er stofa alveg niðrí bæ. Hentar henni ljómandi vel og núna getur hún alltaf skotist í hádeginu og keypt sér einn og einn pels ef hana langar.

Ég er mjög glöð fyrir hennar hönd. Hef oft undrast það hvernig það er hægt að vinna í Kringlunni og sjá aldrei hvernig veður er úti og fá aldrei ferskt loft með því að opna glugga. Á eftir að kíkja til hennar á nýju stofuna og taka út aðstæður - hvernig kaffið smakkast og hvort það sé til hármótunarefni þar sem höfðar til mín. Ég er mjög undarleg þegar kemur að slíkum efnum.

Annars missti ég af fermingarbarnamótinu hjá árganginum mínum vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Helgin hjá mér fór sem sagt í það að öfunda þau sem voru þar að skemmta sér og vorkenna sjálfri mér gríðarlega. Ég jafna mig fljótlega og mér fannst mjög gaman að heyra sögurnar frá Birnu þegar hún skilaði sér aftur í bæinn. Heppnaðist víst framúrskarandi vel. Það er hægt að byrja að láta sig hlakka til eftir 10 ár...

Stefnt er á stelpukvöld á sunnudaginn. Sex and the city er komin í bíó og ætlum við vinkonurnar að hittast og borða saman og storma svo í bíó. Hlakka mjög til. Vildi bara óska þess að GB væri á landinu til að njóta þess með okkur.

Er í svörtum bol


Jarðskjálfti

Þar kom að því. Ég var rétt í  þessu að upplifa í fyrsta skipti á ævinni jarðskjálfta.  Verð nú að segja að mér fannst þetta ansi magnað og pínu óhugnarlegt. Vinur minn var í kaffi hjá mér og sátum við og drukkum kaffi við borðstofuborðið. Allt í einu fór stólinn minn að hristast til og ég var ekkert að fatta hvað var í gangi. Myndirnar á veggjunum fóru á ferðina og rugguðu til í talsverðan tíma. Áttuðum okkur nú fljótlega hvað var í gangi.

Jarðskjálfti er bara eitthvað sem maður upplifir ekki í Neskaupstað og eftir að ég flutti til Reykjavíkur - sem er nú orðið ansi langt síðan þá hefur það alltaf atvikast þannig að ég hef verið stödd fyrir austan þegar hefur komið jarðskjálfti hér í borginni. Man sérstaklega eftir því þegar Pétur bróðir hringdi í mig um árið. Þá reið ansi stór skjálfti yfir og hann var staddur í bíói. það var 17. júní að mig minnir. Upplifði það bara í gegnum hann, því ekki fann ég fyrir neinu - enda stödd í minni sveit..

Best að fara að kynna sér hvernig maður á að bregðast við í jarðskjálfta.

Er í svörtum bol


Facebook

Það er milljón sinnum örugglega búið að minnast á fyrirbæri við mig sem heitir Facebook. Ég hef aldrei spáð í það eða skoðað það einu sinni. Var nokkuð viss um að það væri bara alveg eins og my space - sem ég hafði engan og hef engan áhuga á og nennti aldrei að kynna mér.

Núna hef ég hinsvegar nógan tíma og drepleiðist oft þannig að ég fór að kíkja aðeins á Facebook. Búin að skrá mig og er svona að átta mig á því hvernig þetta virkar og skoða hverjir eru þarna. Mér fannst það mjög merkilegt þegar ég var búin að skrá mig og var ekki búin að gera neitt annað - þá kom upp síða með fullt af fólki sem facebook sagði að ég þekkti  hugsanlega. Ég þekkti alla þar og er ekki alveg að fatta hvernig þetta virkar. Hvernig veit Facebook að ég þekki þetta fólk ? Geri mér grein fyrir því að sumir tengjast emailinu sem ég gaf upp og þar af leiðandi msn inu, en það var fullt af liði þarna sem tengist því ekki neitt. Mikið af vinnufélögum mínum - en ég gaf ekki upp hvar ég vinn eða neitt slíkt.

Facebook virkar mjög sniðugt svona við fyrstu kynni og ég sé fyrir mér að ég verði að dunda mér í þessu næstu daga. Virðist vera hægt að gera allan andskotann þarna inni.

Ég setti sömu mynd þar og ég er með hérna á blogginu. Stebbi er hræddur við hana. Hann sagði mér að skipta því hann efaðist um að ég eignaðist einhverja vini með þessa óhugnarlegu mynd. Orðrétt sagði hann: "hey, hvernig væri að setja almennilega mynd. maður verður bara hræddur af því að fá friendsrequest frá þessari manneskju.. ;-)"

Mér finnst þessi mynd hinsvegar æðisleg og mér finnst ég reglulega sæt á henni. Fékk td eina athugasemd á hana í gær sem mér fannst frekar athyglisverð. " You look like a beautiful murderer "

Ásgeir Ásgeirsson sérlegur vinur minn í vinnunni á afmæli í dag. Við Lúsin óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með daginn. (sá afmælisdaginn hans inni á facebook, rosasniðugt og mér varð hugsað til þín Úrsúla )

Er í svörtum bol


Hárgreiðsla

Heimasíða árgangsins míns er með líflegra móti þessa dagana - enda styttist í gleðina. Það er alveg magnað að skoða gömlu myndirnar frá hinum ýmsu tímabilum. Við stelpurnar erum flestar allar eins - alveg eins föt og mjög svipaðar hárgreiðslur. Hver og ein virðist ekki hafa farið að finna sér sinn eigin stíl fyrr en að ganga tvítugt sýnist mér.

Fann eina snilldarmynd af mér frá því í gaggó. Gæti verið svona fimmtán ára á henni - ekki alveg viss. Birti hana hér ykkur til gamans og nokkuð viss um að ég redda helginni hjá einhverjum lesenda. Fyndnast finnst mér þó sú staðreynd að hárið á mér í dag er ekkert svo ósvipað klippingunni sem ég er með á myndinni. Sigrún var að klippa mig á dögunum og við vorum að spá í það þegar þessar myndir komu á vefinn að ég er eiginlega komin í hring. Reyndar ekki alveg tekið með vél upp í hliðunum eins og á gömlu myndinni - en ótrúlega svipað samt. Tel óþarft að minnast á gleraugun - mjög varasamt að láta taka myndir af sér með gleraugu ;)

Thorey

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er annars viss um að fermingarbarnamótið eigi eftir að heppnast ótrúlega vel. Mikil stemmning greinilega að byggjast upp og allir sem ég tala við mjög spenntir. Uggason vinur minn verður yfir eldhúsinu í Egilsbúð þessa helgi og skilst mér að árgangurinn verði þar í mat á laugardagskvöldinu. Hann var í kaffi hjá mér áðan og sagði mér frá matseðlinum sem verður í gangi. Ótrúlega girnilegur. Þriggja rétta ofurflott máltíð og ball með Páli Óskari á 6 þús kall. Maður fer nú varla út að borða á pitsustað hérna í Reykjavík fyrir þann pening.

Er í svörtum bol


Bjarki

Eðlan Bjarki andaðist í nótt eftir erfið veikindi. Blessuð sé minning hans.

Útför hans verður ákveðin síðar.

Er í svörtum bol

 


Gamlar myndir

Dagurinn í dag er búinn að fara í það að leita að gömlum myndum fyrir fermingabarnamótið sem nálgast óðfluga. Fann eitt og annað. Því miður þá er ég ekki búin að koma því í verk að skanna inn allar ljósmyndirnar mínar - en rakst á nokkrar sem ég hef skannað inn í tölvuna á sínum tíma.

Tilteknar myndir eru teknar í bekkjapartýi heima hjá Hansa fyrir hundrað árum. Þær má finna á síðu árgangsins hér. Textinn við myndirnar er upprunalegur og ég bíð spennt eftir því að fatnaðurinn komist aftur í tísku.

Ég er annars stopp í 24. Helvítis dvd spilarinn er búinn að bræða úr sér held ég. Það fer alveg að koma að því að ég missi mig í sambandi við þetta tækjadrasl og hendist út með dvd spilarann og tölvuna og kveiki í þessu. Ekki má gleyma gsm símanum - held að hann sé við það að bræða úr sér líka.

Er í svörtum bol

 


Hægt að skipta út krakkanum sínum !

GB var að benda mér á afar sérkennilega heimasíðu. Krakkaskiptisíða ! Ég veit nú bara eiginlega ekki hvað mér finnst um þetta. Allt er nú til segi ég bara. Reyndar ekki búin að lesa alveg út á hvað þetta gengur eða hvernig staðið er að málum - en það litla sem ég las fannst mér sérkennilegt.

Ég er sem stendur í gíslingu sjónvarpsþáttanna 24. Búin að vera það undanfarna daga. Hafði aldrei horft á einn einasta þátt fyrr en núna á dögunum þegar ég lenti inn á spítala. Þá hefur maður jú lítið við að vera - þannig að ég byrjaði með semingi að glápa á þetta. Það var við manninn mælt - ég sökk á bólakaf ofan í þættina og þeir eru æðislegir. Kannski fullspennandi. Maður byrjar að horfa og getur ekki hætt. Ég þori varla að segja frá því - en ég er búin með seríu þrjú ! En ég á að hafa hægt um mig og er til eitthvað betri leið til þess en að glápa á sjónvarpið. Yfirleitt les ég , en ég get það því miður ekki almennilega núna. Þannig að ég hef afsökun.

Reyndar er ég líka búin að vera að leggja drög að bréfaskriftum þessa daga líka. Komin með uppkast. Það er best að vera við öllu búin - ef ég skyldi fá "NEI" frá Landspítalanum varðandi nýja ms lyfið. Ég er nú þó frekar bjartsýn með það mál. Einnig er eitt kvörtunarbréf í vinnslu. Varð alveg brjáluð um daginn þegar ég var að tala við eina hjúkrunarkonu á LSH í síma - snérist líka um Tysabri. Hún var bæði ókurteis og hortug og talaði með "tón" (en það þoli ég mjög illa) um hluti sem komu henni nákvæmlega ekkert við og hún var ekki með neinar upplýsingar varðandi mín mál en dirfðist þó að koma með einhverjar athugasemdir. Sleppti því að garga á hana og ákvað frekar í bræði minni eftir símtalið að semja kvörtunarbréf til yfirmanna hennar. Þarf líklegast ekki að taka það fram að ég er heima að jafna mig eftir sterakúr.

Draupnir og Sigrún eru að spóka sig úti í Toronto og ég er að deyja úr öfund. Hlakka mjög til þegar þau koma heim á morgun og segja mér ferðasöguna og færa mér súkkulaðið sem ég bað sérstaklega um að keypt yrði fyrir mig.

Hef eitthvað alveg gríðarlega mikið að segja núna eftir svona langt blogghlé en ég ætla að láta það bíða. Kannski hafa færslurnar aðeins reglulegri hér eftir. Er bara hreint ekkert búin að vera í stuði til að blogga síðustu vikurnar.

Er í svörtum bol


Gamaldags sunnudagsmatur

Eldaði lambalæri á gamla mátan í kvöld og bauð Sigrúnu og stjörnunni Draupni í mat. (stjarnan er í maður dagsins í dv á morgun) Lambalæri - soðsósa - rauðkál og brúnaðar kartöflur. Malt og appelsín með. Æðislega gott og við vorum öll sammála um það að nauðsynlegt væri að fá svona mat oftar. Sátum svo og höfðum það gott og töluðum hvert í kapp við annað eins og venjulega þegar við hittumst.

Annars er dagurinn búinn að fara í það að kljást við roðmaura eða hvað sem þeir heita. Litlir andskotans djöflar sem koma inn um gluggann. Of litlir og of svifaseinir til að Lúsin veiti þeim athygli, þannig að ég þurfti að finna önnur úrræði. Brunaði upp í Garðheima eftir hádegi og stormaði beint inn í plöntumeðferðardeildina. Hálf æpti á konuna sem var að afgreiða hvaða vandamál ég ætti við að stríða og var mikið niðrifyrir. Nokkur úrræði voru í boði. Ég keypti einhverja límrenninga sem maður setur á gluggann. Þá festast þessi kvikindi þar og drepast. Keypti líka húsa- og garðaúða til að spreyja á húsvegginn og allt í kring. Hægt var að fá öflugra eitur til að setja í jarðveginn - þorði ekki að kaupa það af ótta við að Lúsinni myndi eitthvað verða meint af. Þó svo að hann veiði ekki roðmaura. Sjáum hvað setur. Kanna límgildrurnar í fyrramálið.

Mér tókst líka þessa helgi að saxa aðeins á heimsóknarskuldirnar sem ég er komin í. Sigga Dóra og Valli voru heimsótt í gær. Ætlaði bara rétt að droppa við í kaffi seinnipartinn en endaði á því að borða með þeim og sitja og kjafta til að verða ellefu. Mjög skemmtilegt og ég fékk einmitt með mér heim myndirnar sem teknar voru í afmælinu hennar Siggu í febrúar. Hefði nú betur sleppt því að kíkja á þær - því ég er alvarlega að hugsa um að banna allar myndavélar þar sem ég er staðsett í framtíðinni. Tja eða fara í meðferð við athyglissýki. Er það annars til ? Ætli athyglissýki flokkist undir geðsjúkdóm ? Spurning spurning.

Svo held ég að villupúkinn sem er í boði hérna á moggablogginu sé lesblindur - eða bara með svona hryllilega lélegan orðaforða.

Er í svörtum bol


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband